Nánar um frétt

02.03.2009

Álslaufan til sölu hjá fyrirtækjaþjónustu Pennans

 

Sérhannaðar slaufur til styrktar átakinu Karlmenn og Krabbamein verða boðnar fyrirtækjum í landinu til kaups á 1.000 krónur stykkið og hefur fyrirtækjasvið Pennans veg og vanda að sölu þeirra. Ágóði af átakinu fer til fræðslu og ráðgjafar við krabbameinssjúklinga og aðstandendur þeirra.

 

Allar nánari upplýsingar er hægt að fá hjá sölufulltrúum fyrirtækjaþjónustu Pennans í síma 540-2050 og með því að senda póst á netfangið pontun@penninn.is

Hægt er að kynna sér átakið nánar á karlmennogkrabbamein.is.

 

Rannsóknir sýna að hægt er að koma í veg fyrir allt að eitt af hverjum þremur krabbameinstilfellum með því að borða hollari mat, stunda líkamsrækt reglulega, stilla drykkju og sólböðum í hóf og halda sig frá reykingum


Til baka
Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi