Um vefverslun
Vefverslun Pennans
Á Penninn.is getur þú gert skrifstofuvöruinnkaupin hvenær sem þér hentar. Vefverslunin er aðgengileg og auðvelt er að finna réttu vöruna með leitarvélinni. Hægt er að skoða eldri pantanir, fá yfirlit yfir öll tilboð sem eru í gildi á hverjum tíma og útbúa sinn eigin innkaupalista. Með örfáum aðgerðum getur þú sent inn pöntun sem verður afgreidd til þín næsta virka dag.
Aðgangur
Með notkun vefverslunar gefst öllum viðskiptavinum Pennans sá valmöguleiki að versla í gegnum vefinn. Hægt er að nota viðskiptamannareikning eða kreditkort, allt eftir þörfum hvers og eins.
Safna í körfu
Þegar þú hefur fundið þá vöru sem þú ætlar að panta og fært inn magnið smellir þú á myndina af körfu hægra megin á skjánum. Þú getur ávallt skoðað hvað komið er í körfuna og breytt að vild með því að smella á körfuhnappinn. Ef þú vilt breyta magni skráir þú það magn sem óskað er í magndálkinn og smellir á ,,Uppfæra” . Ef þú vilt fella niður vöru sem komin var í körfu smellir þú á ,,Eyða færslu”. Til að staðfesta valdar vörur smellir þú á ,,Áfram”.
Senda pöntun og skilaboð til þjónustuvers
Þegar þú hefur samþykkt pöntunina birtist valmynd sem gefur þér möguleika á að senda skilaboð til þjónustuvers, t.d. ef þú finnur ekki einhverja vöru eða vilt fá pöntunina afgreidda á annan stað en venjulega. Til að senda pöntun til þjónustuvers smellir þú á ,,Afgreiða pöntun” og færð staðfestingu í tölvupósti á að pöntun hafi verið móttekin og sé komin í afgreiðslu.