Húsgagnadeild Pennans
Húsgagnadeild Pennans er með tvo glæsilega sýningarsali. Annan í Hallarmúla 4 í Reykjavík og hinn í Hafnarstræti 91-93 á Akureyri. Þar er mjög gott úrval skrifstofuhúsgagna, skrifborðsstóla og heimilishúsgagna til sýnis. Sjón er sögu ríkari. Eins býður Penninn sérlausnir fyrir bæði lítil og stór fyrirtæki, skóla og stofnanir. Hér má sjá myndir af þeim verkefnum sem við höfum unnið nýlega fyrir okkar viðskiptavini.
Sími 540-2000
Fax 568-9315.
husgogn@penninn.is.
ÍSLENSK HÚSGÖGN - FANSA PLÚS
Fansa er íslensk framleiðsla hönnuð af Valdimar Harðarsyni. Við erum stolt af þessari stílhreinu skrifstofulínu, enda hefur hún hlotið fádæma góðar viðtökur hjá viðskiptavinum okkar. Ný viðbótarlína frá FANSA er ber heitið FANSA plús er komin á markaðinn. Húsgagnalínan er íslenskt hugvit alla leið. Mikil áhersla er lögð á að allar einingar í FANSA Plús línunni falli vel saman og verður það til þess að möguleikar á uppröðun verða ótalmargir og allaf jafn smekklegir og hentugir, sama hvort skrifstofuhúsnæðið er lítið eða stórt. Nýja línan mætir breyttum þörfum viðskiptavina að því leytinu til að hún er ódýrari og fleiri útfærslumöguleikar í uppröðun og samsetningu. Penninn leggur mikinn metnað í val á vörum sem hann býður viðskiptavinum sínum og með FANSA línunni er hægt að bjóða hvort tveggja upp á góða íslenska hönnun og framleiðslu.
(PDF skjal).