Fansa skrifstofuhúsgögn
Fansa er íslensk framleiðsla hönnuð af Valdimar Harðarsyni. Við erum stolt af þessari stílhreinu skrifstofulínu, enda hefur hún hlotið fádæma góðar viðtökur hjá viðskiptavinum okkar. Ný viðbótarlína frá FANSA er ber heitið FANSA plús er komin á markaðinn. Húsgagnalínan er íslenskt hugvit alla leið. Mikil áhersla er lögð á að allar einingar í FANSA Plús línunni falli vel saman og verður það til þess að möguleikar á uppröðun verða ótalmargir og allaf jafn smekklegir og hentugir, sama hvort skrifstofuhúsnæðið er lítið eða stórt. Nýja línan mætir breyttum þörfum viðskiptavina að því leytinu til að hún er ódýrari og fleiri útfærslumöguleikar í uppröðun og samsetningu. Penninn leggur mikinn metnað í val á vörum sem hann býður viðskiptavinum sínum og með FANSA línunni er hægt að bjóða hvort tveggja upp á góða íslenska hönnun og framleiðslu. (PDF-skjal)
Magni er staflastóll sem nýtist alls staðar þar sem margir koma saman. Hægt er að stafla stólunum á vagn sem fæst með. Magni veitir einstök sætisþægindi og er sérstaklega léttur og fallegur. Stóllinn er samtengjanlegur á hliðum til að mynda beinar raðir/bekki. Grind Magna er mjög sterk og áklæðið sérlega endingargott, en stóllinn er með 5 ára ábyrgð. Með Magna verður hægt að fá skrifplötur, bekkja- og sætanúmer og arma. (PDF-skjal)
Valdimar Harðarson, sem hannaði bæði Fansa og Magna, er fæddur árið 1951 í Keflavík. Valdimar lauk BS prófi í arkitektúr frá London, en útskrifaðist sem arkitekt frá Lunds Tekniska Høgskola í Svíþjóð árið 1979. Hann starfaði á Teiknistofu Magnúsar Skúlasonar og Sigurðar Harðarsonar eftir að námi lauk, þar til sjálfstæður rekstur hófst.