Te og kaffi
Penninn býður nú fyrirtækjum að fá kaffi- og vatnsvélar í gegnum þjónustusamning. Við val á vélbúnaði er horft til áralangrar reynslu samstarfsaðila okkar í Te & Kaffi.
Penninn leggur metnað sinn í að bjóða aðeins bestu vélar og hráefni. Starfsfólk Pennans kennir á búnaðinn ásamt því að sjá um uppsetningu og viðhald sé þess óskað.
Allt sem þú þarft að gera er að sjá um daglegan rekstur og njóta gæðakaffis frá Te & Kaffi.
Hafðu samband, við metum þörfina og gerum þér tilboð ...
1. Ekkert fjármagn bundið í vélbúnaði
2. Reglulegt eftirlit
3. Bili vél er henni skipt út til að valda lágmarks óþægindum
4. Aðgangur að sérþekkingu á vélbúnaði og hráefni
5. Vélbúnaður, hráefni og þjónusta á sömu höndum
6. Besti bollinn í vinnunni
7. Allt þetta án aukagjalds
Hér má sjá úrval kaffivéla og kaffivöru sem við bjóðum.
Hafðu samband við kaffi@penninn.is eða í síma 540-2050 ef þú vilt koma í rjúkandi samstarf.
Eins er hægt að kaupa kaffivöru í vefverslun okkar.