Starfsmannastefna Pennans á Íslandi

Við leggjum áherslu á velferð starfsmanna og mikilvægi þess að hlúa sífellt að þekkingu, menntun og þjálfun þeirra. Við leitumst við að taka vel á móti nýjum starfsmönnum og leggjum mikið uppúr að þeim líði vel í starfi frá fyrsta degi. Við gætum fyllsta jafnréttis og hver starfsmaður er metinn á eigin forsendum. Með framkvæmd og eftirfylgni starfsmannastefnunnar er tryggt að mannauður fyrirtækisins nýtist sem best.

 

Markmið

Að efla liðsheild og að allir séu samstíga í átt að settum markmiðum.

 

Hornsteinar starfsmannastefnunnar

• Að velja starfsfólk af kostgæfni
• Að tryggja starfsþróun og símenntun
• Að vera eftirsóttur vinnustaður
• Að tryggja sterka liðsheild
• Að halda sjónarmiðum jafnréttis í heiðri

 

Fræðslumarkmið

• Að auka þekkingu og þjálfun starfsmanna
• Að leggja áherslu á tækifæri til framþróunar
• Að tryggja tækifæri til símenntunar

 

Jafnréttismarkmið

• Að gæta jafnréttis við ráðningu og starfsþróun
• Að greiða sömu laun fyrir sambærileg störf
• Að einelti og kynferðisleg áreitni skuli ekki liðin
• Að mismunun er óheimil í hvaða formi sem er

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi