Hjálp
Almennar spurningar.
1. Hversu öruggt er að versla með greiðslukorti í gegnum Netið?
Til að koma í veg fyrir misnotkun kortanúmera þegar verslað er á Netinu og varna því að utanaðkomandi geti komist yfir númerin hafa ýmis öflug öryggiskerfi verið hönnuð. Netverslun Pennans er varin með 128-bita dulkóðunarlykli frá Verisign. Um leið og viðskiptavinur ákveður að kaupa vöru fer hann inn í læst umhverfi þar sem allar upplýsingar um viðskiptin, þ.m.t. kortanúmerin eru dulkóðuð. Ógjörningur er fyrir utanaðkomandi aðila að nálgast þessar upplýsingar. Sá sem verslar í því umhverfi má vera 100% viss um að upplýsingarnar sem hann skráir eru algjörlega varðar fyrir utanaðkomandi aðilum.
2. Hvenær kemur sendingin til mín?
Um leið og þú lýkur kaupum á penninn.is er pöntun þín send til starfsmanna netverlunar sem sjá svo um að pakka vörunni eins fljótt og hægt er og senda af stað í póst. Venjulega tekur þetta ferli ekki lengur en 1 virkan dag. Starfsmenn Íslandspósts keyra síðan pakka til heimila á milli kl. 17:00-22:00 á kvöldin. Þetta þýðir að ef þú átt von á pakka eða ábyrgðarbréfi með Íslandspósti, þarftu ekki að fara á næsta pósthús til að ná í sendinguna þína heldur komum við með sendinguna heim til þín. Ef enginn er heima þegar starfsmaður Íslandspósts kemur er viðkomandi tilkynnt á hvaða pósthúsi hægt er að nálgast sendinguna.
3. Hvað geri ég ef ég vill skila vöru sem ég keypti í netverslun?
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með.
4. Hvað verður um sendingarupplýsingar og netföng sem ég skrái á vefnum?
Engar persónuupplýsingar né netföng eru seldar eða látnar í té til þriðja aðila. Netföng sem skráð eru á vef Pennans eru skráð á póstlista í eigu Pennans sem er einungis notaður til að senda áskrifendum upplýsingar um tilboð og viðburði tengda vefnum eða þjónustu Pennans.
5. Þessi síða er ekki að hjálpa mér!
Ef þig vantar svar við spurningu sem ekki er svarað á þessari síðu bendum við þér vinsamlegast að senda tölvupóst á penninn@penninn.is