Styrkumsókn
Allt frá árinu 1932 hafa eigendur Pennans ehf. lagt sig fram um að leggja góðum málefnum lið og hafa styrkt hin ýmsu málefni sem varða alla hópa þjóðfélagsins. Penninn úthlutar styrkjum úr fjórum mismunandi styrktarsjóðum sem sjá má hér að neðan og miðast fjárhæðir við úthlutun styrkja árið 2009.
1. Listasjóður
Listasjóður Pennans veitir 900 þúsund krónur á ári í styrki til myndlistarmanna auk þess að kaupa verk. Útdeilt var í fyrsta sinn úr sjóðnum árið 2007.
Umsækjendur skulu skila inn gögnum á rafrænu formi að lágmarki 5 verkum sem hafa verið gerð. Umsóknum skal skilað í gegnum vef Pennans.
Sjóðstjórnin mun fyrir 1. maí ár hvert auglýsa eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Umsóknarfrestur er 4 vikur frá birtingu auglýsingar. Sjóðstjórnin er ekki bundin af umsóknum heldur getur hún valið listamann að eigin frumkvæði óháð umsóknum. Úthlutað er einu sinni á ári.
2. Menningarsjóður
Penninn veitir 500 þúsund krónur í menningarstyrki á ári. Dæmi um verkefni sem hlotið hafa styrk úr menningarsjóði Pennans ehf eru Dimmalimm verðlaun myndskreyta, Leikhópurinn Vesturport og Jazzhátíð í Reykjavík.
3. Íþróttasjóður
• Útdeilt er úr íþróttastyrktarsjóði tvisvar sinnum á ári, á vori og hausti, fyrir samtals að hámarki 1,5 milljónir króna. Bæði eru veittir peninga og vörustyrkir úr sjóðnum.
4. Almennur styrktarsjóður
• Útdeilt er úr almennum styrktarsjóði fyrir að hámarki 1 milljón króna. Bæði eru veittir peninga og vörustyrkir úr sjóðnum.
Styrkir
Styrktarbeiðnir eru teknar fyrir mánaðarlega og er þeim svarað með tölvupósti eigi síðar en 5 vikum eftir að erindi berst. Ef skilafrestur á lógói v/styrks er styttri en 4 vikur, þá bendum við viðkomandi á að hafa þeim mun betri fyrirvara á umsókn síðar.
Penninn ehf vill með styrkjum sínum veita félagasamtökum og eintaklingum tækifæri á að vinna að málefnum sem snerta samfélagið sem og listsköpun í þágu íslensks menningarlífs.
Þar sem styrktarmálefnin eru mörg er ekki sjálfkrafa hægt að búast við styrk að ári þótt veittur hafi verið styrkur áður.
Tekið er á móti styrktarbeiðnum á netfangið styrkur@penninn.is
Auglýsingabeiðnir
Auglýsingar eru skipulagðar í samráði við markaðsstjóra Pennans ehf. og Eymundsson. Við ákvarðanatöku ráða markaðsleg sjónarmið, svo sem markhópar, snertiverð, dreifing, tíðni og dekkun.
Til að sjá firmamerki Pennans ehf, Eymundsson og Bókabúðar Máls og menningar, skal hafa samband við markaðssvið.