Eames Plastic Chair

Stólarnir voru hannaðir árið 1950 af heimsþekktu hönnuðunum Charles & Ray Eames. Hönnun og smíði stólanna þykir vönduð og stólarnir mjög endingargóðir. Það sem einkennir stólanna hvað mest er hve mikið úrval er í boði af litum á sætisskeljum, áklæðum og fótastellum. Það fylgir einnig 5 ára ábyrgð með öllum Eames Plastic Chair stólum frá okkur.


 


 

Fótastell– sjö gerðir

Fótastellinn eru annað hvort úr viði eða stáli og fást í nokkrum útgáfum.

 

Sætisskeljar – tvær gerðir

Sætisskeljarnar eru annað hvort með örmum eða án arma.

 


 

 

Áklæði og bólstrun

Mikið úrval er af áklæðum sem hægt er að bólstra stólinn með. Það eru 35 mismunandi áklæði og litir sem hægt er að velja á milli. Bólstrun sem er í boði sætisbólstrun og albólstrun, þ.e.a.s. öll skelin er bólstruð.

Litir á sætisskeljum

Það eru 14 litir í boði á sætisskeljum.

 


 

Configurator

Settu saman þinn eigin stól með því að smella á myndina.