
Hægindastólar frá Vitra
Hægindastólarnir frá Vitra sameina fallega hönnun og þægindi
Eames Lounge Chair
Eames Lounge Chair er án efa einn frægasti hædindastóll fyrr og síðar. Hann var hannaður af hönnuðunum og hjónunum Charles & Ray Eames árið 1956. Hann hefur notið mikilla vinsælda á heimsvísu frá því að hann kom fyrst á markað og það gleður okkur að geta boðið viðskiptavinum okkar Eames Lounge Chair á einu besta verði í Evrópu.
Skel stólsins er úr krossvið með spón sem er framleiddur í Bandaríkjunum, Brasilíu og Þýskalandi. Sætið er klætt gæðaleðri sem er bæði slitsterkt og mjúkt snertingu. Stóllinn situr svo á krossfæti úr sterku áli. Við bjóðum upp á fjórar útfærslur af Eames Lounge Chair en hægt er að sérpanta aðra útfærslu og fá þá möguleika á að velja á milli fjölda mismunandi viðategunda í skel og fjölda leðurs- og litategunda.

Eames Lounge Chair
Repos, Grand Repos og Grand Relax
Sérstaklega vandaðir hægindastólar sem sameina þægindi og fallega hönnun. Þeir eru látlausir og smekklegir og henta öllum þeim sem vilja slaka á í fallegu umhverfi. Stólarnir eru hannaðir af Antonio Citterio, eru stillanlegir og fáanlegir í fjölda áklæðislita og leðri í ýmsum litum.

Relax, Grand Relax, Repos og Grand Repos
Vitra og umhverfið
Til að tryggja bestu mögulegu gæði og lágmarka spillandi umhverfisáhrif ákvað Vitra árið 1997 að taka upp vottað gæða- og umhverfisstjórnunarkerfi. Vitra styður umhverfið og hefur gripið til margra aðgerða sem stuðla að því að auka sjálfbærni og umhverfisvænleika. Fyrirtækið leggur áherslu á að draga sem mest úr notkun orku, hráefna og annara auðlinda á öllum stigum framleiðsluferlisins og þannig lágmarka spillandi umhverfisáhrif sem vöruframleiðsla ber með sér. Vitra segir einnig að það sé gæði varanna sem skiptir miklu máli þegar kemur að því að meta um umhverfisvænleika ákveðinna vara. Ástæðan fyrir því er að gæða hönnunarvörur endast lengur og eru því í notkun yfir lengri tíma áður en þeim er að lokum fargað.
Sjáðu hvernig Eames Lounge Chair er settur saman
Við erum í Askalind 2A. Hlökkum til að sjá þig.