19 fingur upp til Guðs
| Price: | 5.199 ISK |
Höfundur
Product description
Eldri maður finnst látinn í trillu við bryggju austur á fjörðum. Við fyrstu sýn lítur út fyrir að hann hafi einfaldlega lagst til hvílu og ekki vaknað aftur. Þegar betur er að gáð kemur í ljós að dauða hans bar ekki að með eðlilegum hætti. Ásta hefur nýlega tekið við stöðu lögreglustjóra í bænum þegar rannsókn málsins lendir á hennar borði. Innan skamms leiða þræðir málsins hana aftur um rúma þrjá áratugi, að afskekktum sveitabæ þar sem unglingaheimili var rekið á tíunda áratug síðustu aldar, og þar sem Tryggvi, samstarfsmaður Ástu úr Reykjavík, dvaldi sem barn.
Um leið og Ásta kafar dýpra ofan í málið afhjúpast tregafull og tilfinningaþrungin saga um djúpstæðar afleiðingar æskuáfalla og afbrot ungmenna sem samfélagið kaus að gleyma. Rannsóknin vindur hratt upp á sig og verður að óvæntri og spennandi atburðarás þar sem mörkin milli fórnarlamba og gerenda mást út. Spurningin er ekki lengur aðeins hver myrti gamla manninn, heldur hvaða óhugnanlegi sannleikur var grafinn á unglingaheimilinu fyrir meira en þrjátíu árum - og hvort Tryggvi sé tilbúinn að horfast í augu við myrkrið í sinni eigin fortíð.
Product category
-
Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - kiljur
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2026
- Blaðsíðufjöldi: 247
