Ævintýraheimur Narníu
| Price: | 7.799 ISK |
Product description
Ævintýraheimur Narníu, kilja sem geymir allar 7 Narníusögurnar í fullri lengd. Bækurnar um Narníu standast tímans tönn og hrífa lesendur, unga sem aldna. Notast er við sömu þýðingu og áður sem þýðandinn, Kristín R. Thorlacius hafði endurskoðað.
Stórkostlegar verur, hetjudáðir, ótrúlegir bardagar í stríði góðs og ills og ógleymanleg ævintýri sameinast í heimi sem teflir fram töfrum og veruleika, heimi sem hefur heillað lesendur á öllum aldri í rúm sjötíu og fimm ár. Í þessari nýju útgáfu eru upprunalegu frásögurnar um Narníu samankomnar í fullri lengd, allar sjö í einu bindi.
C. S. Lewis varð fyrir áhrifum og heillaðist af Íslendingasögunum og norrænni goðafræði. Glöggir lesendur geta greint þennan innblástur við lestur Narníu-bókanna. Sögurnar af Narníu eru orðnar hluti af klassískum bókmenntum og eru taldar ein besta bókaröð allra tíma á sviði ævintýraskáldskapar. Seld eintök á heimsvísu eru yfir 115 milljónir. Ævintýraheimur Narníu hefur verið kvikmyndaður, settur upp á leiksviði og gerðar þáttaraðir um hann fyrir sjónvarp.
