Allar litlu lygarnar kilja
| Price: | 4.999 ISK |
Penninn Eymundsson
- Akranes
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Akureyri
- Hallarmúli 4
- Hafnarfjörður
- Húsavík
- Mjódd
- Selfoss
- Smáralind
Höfundur
Product description
Í tvo áratugi hefur þetta mál vafist fyrir mér, en aldrei bjóst ég við því að einn daginn yrði ég hluti af sögunni.
Ung velgengnishjón láta lífið af skotsárum á heimili sínu frá tveimur dætrum, kornabarni og unglingsstúlku. Tuttugu árum síðar leitar sú eldri til sálfræðings sem sérhæfir sig í áföllum og þekkir þau reyndar líka á eigin skinni. Hvað gerðist á þessu mikla fyrirmyndarheimili? Hvers vegna töldu ýmsir innan lögreglunnar að ekki hefðu öll kurl komið til grafar í málinu? Og af hverju er sálfræðingurinn með rannsóknargögn úr því í sínum fórum?
Eva Björg Ægisdóttir hefur hlotið margvísleg verðlaun fyrir glæpasögur sínar, bæði heima og erlendis, meðal annars unnið Blóðdropann Íslensku glæpasagnaverðlaunin og Gullrýtinginn í Bretlandi fyrir frumraun ársins. Bækur hennar koma út á yfir tuttugu tungumálum.
Product category
-
Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - kiljur
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2025
- Blaðsíðufjöldi: 344
