Log In

to shop

Karfa

  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
Valmynd
  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
  • FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA

Innskráning

Nýskráning - Fyrirtæki
Nýskráning -Einstaklingar Gleymt lykilorð?
  1. Allar íslenskar bækur
  2. Bjarmalönd

Bjarmalönd

Sækja mynd
Image description
Price:5.179 ISK
Vörunúmer: JPV343363
Hvar er varan fáanleg

Penninn Eymundsson

  • Austurstræti 18
  • Hafnarfjörður
  • Skólavörðustígur
  • Smáralind

Höfundur

Valur Gunnarsson

Product description

Bjarmalönd er í senn upplýsandi, stórfróðleg og bráðskemmtileg svipmynd af heimshluta sem fjallað er um í næstum hverjum fréttatíma, hvort sem um er að ræða stríðið í austurhluta Úkraínu eða mótmæli gegn Lúkasjenkó í Hvíta-Rússlandi, átök um Nagornó Karabak eða ráðgátuna Pútín.

Valur Gunnarsson, sagnfræðingur, rithöfundur og blaðamaður, drakk á unga aldri í sig fréttir af stjörnustríðsáætlunum og kjarnorkuvá, og kjarnorkuslysið í Tsjernóbíl virtist staðfesta að allt gæti gerst. Svo féll múrinn, Sovétríkin leystust upp og friðvænlegra virtist um hríð. Á landakortinu birtust ýmis ríki þar sem risaveldið hafði áður verið: Eistland, Lettland og Litáen, Úkraína og Hvíta-Rússland, ný -stan-lönd í Mið-Asíu og átakasvæði við Kákasusfjöll. Að ógleymdu Rússlandi sjálfu.

Ný heimsmynd sótti á hugann. Undir lok síðustu aldar var Valur við nám í Rússlandsfræðum í Finnlandi og fór loks yfir landamærin til Rússlands, í fyrsta sinn af mörgum. Síðan hefur hann búið í Eistlandi og Rússlandi og heimsótt flest hinna fyrrum Sovétríkja. Veturinn og vorið 2020 dvaldi Valur í Úkraínu á tímum kófs, og heimsótti þá m.a. Hvíta-Rússland rétt fyrir uppþot. Bókin er afraksturinn af þessari dvöl og ferðalögum, fræðistörfum og greinaskrifum undanfarinna 20 ára.

Product category

    Íslenskar bækur, Fræði- og handbækur
  • Form: Kilja
  • Útgáfuár: 2021
  • Blaðsíðufjöldi: 432
  • Staðsetningar og opnunartímar
  • Skilmálar
  • Hafa samband
  • Vildarklúbbur
  • Um Pennann Eymundsson
  • Verslanir
  • Dreifingarmiðstöð - Verkstæði
  • | Penninn ehf. - Kt. 560109-0670 - Smáratorg 3, 201 Kópavogur - Ísland, Vsknr. 100269 |

540 2000

Skiptiborð

Samband við allar verslanir