Bréfin hennar mömmu
| Price: | 4.299 ISK |
Penninn Eymundsson
- Akureyri
- Skólavörðustígur
- Selfoss
- Smáralind
Höfundur
Product description
Í kjallaranum á Bessastöðum var geymd gömul blá taska. Gerð úr þunnum málmi, beygluð og illa farin, læsingarnar lítið eitt ryðgaðar. Þessi taska hafði fylgt fjölskyldu Ólafs Ragnars allt frá æskuárum hans á Ísafirði en var aldrei opnuð fyrr en að lokinni forsetatíð. Þá kom í ljós fjöldi bréfa sem móðir hans, Svanhildur Hjartar, skrifaði eiginmanni sínum, Grími, árum saman á berklahælum, lengst af Vífilsstöðum en einnig Kristnesi, og sjúkrahúsum í Reykjavík og á Akureyri. Bréfin eru einstæð heimild um glímu þjóðarinnar við hvíta dauðann, eins og faraldurinn var tíðum nefndur.
Á fyrri hluta síðustu aldar voru berklar ein helsta dánarorsök Íslendinga. Þúsundir létust, einkum ungar konur. Bréfin birta á opinskáan og nístandi hátt sögu Svanhildar og fjölskyldunnar og lýsa um leið erfiðum þætti í þjóðarsögunni. Leiða lesandann inn í veröld hinna sjúku í persónulegum frásögnum sem láta engan ósnortinn.
Uppruni og æska Ólafs Ragnars birtast hér í nýju ljósi. Hann skrifar inngangskafla og milliþætti sem tengja bréfin við nútímann.
Product category
-
Íslenskar bækur, Ævisögur - íslenskar
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2022
- Blaðsíðufjöldi: 284
