Log In

to shop

Karfa

  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
Valmynd
  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
  • FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA

Innskráning

Nýskráning - Fyrirtæki
Nýskráning -Einstaklingar Gleymt lykilorð?
  1. Allar íslenskar bækur
  2. Dauðadæmd

Dauðadæmd

Sækja mynd
Image description
Price:8.999 ISK
Vörunúmer: UGL681

Höfundur

Guðný Hallgrímsdóttir

Product description

Sumarið 1769 var ung vinnukona á bænum Gerði í Skagafirði ákærð fyrir að hafa alið barn á laun og drepið það. Hún hét Oddný Jónsdóttir og var 22 ára gömul. Nokkru seinna var hún dæmd til dauða á héraðsþingi í Skagafirði. Í dómi sýslumanns kom fram að hún skyldi hálshöggvast og höfuð hennar sett á stjaka.

Oddný var dæmd fyrir svokallað dulsmál, en það voru sakamál þar sem sannað þótti að kona hefði leynt barnsfæðingu, myrt barnið eða borið það út, stundum í vitorði með barnsföður. Hátt á annað hundrað slíkra mála komu á borð íslenskra yfirvalda á tímabilinu 1600–1900.

Í þessari bók fjallar Guðný Hallgrímsdóttir sagnfræðingur um ævi Oddnýjar, tilurð dulsmálsins og glímu kvenna við réttarkerfið á átjándu. öld.
Guðný Hallgrímsdóttir hefur lokið meistaraprófi í sagnfræði og starfar sem sjálfstætt starfandi fræðimaður. Rannsóknir hennar hafa einkum beinst að sögu kvenna á 18. öld en hún hefur birt fjölda greina á því sviði. Dauðadæmd er hennar þriðja bók. Fyrsta bók Guðnýjar, Sagan af Guðrúnu Ketilsdóttur: Einsögurannsókn á ævi 18. aldar vinnukonu, kom út árið 2013. Fyrir hana hlaut hún Fjöruverðlaunin árið 2014 í flokki fræðibóka. Bókin var einnig tilnefnd til viðurkenningar Hagþenkis sama ár. Önnur bók Guðnýjar, A Tale of a Fool? A Microhistory of an 18th-Century Peasant Woman, kom út hjá Routledge-forlaginu árið 2019.
„Stórfengleg! Frábær og nútímaleg morðgáta.“ Relax and Read Book Reviews

Product category

    Íslenskar bækur, Fræði- og handbækur
  • Staðsetningar og opnunartímar
  • Skilmálar
  • Hafa samband
  • Vildarklúbbur
  • Um Pennann Eymundsson
  • Verslanir
  • Dreifingarmiðstöð - Verkstæði
  • | Penninn ehf. - Kt. 560109-0670 - Smáratorg 3, 201 Kópavogur - Ísland, Vsknr. 100269 |

540 2000

Skiptiborð

Samband við allar verslanir