Ég átti að heita Bjólfur
| Price: | 4.999 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Akureyri
- Hafnarfjörður
- Ísafjörður
- Keflavík
- Skólavörðustígur
- Mjódd
- Selfoss
- Smáralind
Höfundur
Product description
Ekki veit ég af hverju þessi sagan eða hin bankaði upp á og gerði vart við sig þegar ég fór að skrifa niður þessi minningarbrot úr æsku minni. Þær komu einfaldlega trítlandi ein af annarri upp á stigapallinn og minntu á sig líkt og gamlir vinir í heimsókn. Sumar sögurnar líkjast draumum sem manni tekst að muna í morgunsárið áður en þeir gleymast í erli dagsins eða þá skuggum á þili sem komnir eru um langan veg til að segja frá því sem einu sinni var eða á ég að segja: eins og mig minnir að það hafi verið.
Sjónvarpsmaðurinn góðkunni, Jón Ársæll Þórðarson, segir hér sögur úr æsku sinni og rifjar upp veröld sem var, oft á kíminn og persónulegan hátt. Hér er á ferðinni þroskasaga drengs þar sem segir frá uppvaxtarárunum austur á fjörðum, sveitinni í Jökulsárhlíð, síldinni, sjómennsku, mótunarárunum við Skerjafjörðinn, grásleppuútgerð, heimabruggi og mörgu fleira sem rifjað er upp á síðum bókarinnar í máli og myndum. Í bókinni fjallar Jón Ársæll á sinn einstaka hátt um merkilega viðburði í sögu lands og þjóðar og segir frá þekktu fólki sem setti mark sitt á samtímann, fólki til sjávar og sveita sem og þeim sem hafa tveggja heima sýn.
Product category
-
Íslenskar bækur, Ævisögur - íslenskar
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2024
- Blaðsíðufjöldi: 272
