Forystufé með viðaukum
| Price: | 5.199 ISK |
Höfundur
Product description
Bókin Forystufé eftir Ásgeir frá Gottorp er
leiðarsteinn innan íslenskra búvísinda og
þjóðfræði. Höfundur safnaði saman sögum af
þessum merku skepnum alls staðar að af landinu.
Elstu sögurnar eru yfir aldargamlar þegar þær
eru skráðar en aðrar samtímafrásagnir höfundar.
Hér er fylgt almennri reglu íslenskra
sagnamenningar við skrásetningu og jafnan
leitast við að leyfa sagnalistinni að njóta sín
samhliða því að halda ætíð því fram sem sannast
reynist. Sögur Ásgeirs eru hetjusögur af sauðfé
og draga fram ótrúlega vitsmuni og náttúrugreind
þessarar dularfullu skepnu.
Þegar bókin
Forystufé kom út árið 1953 voru miklar
breytingar að verða á íslenskri sauðfjárrækt.
Vetrarbeitin var þá á hröðu undanhaldi og hefur
síðan lagst nær alveg af með tilheyrandi
breytingum allra þjóðhátta sem tengjast
greininni. Nú þegar endurútgáfa þessarar merku
bókar kemur fyrir almenningssjónir eru ekki
síður miklar breytingar að verða á íslenskum
búskap og þáttur sauðfjár í daglegu lífi
þjóðarinnar.
Product category
-
Íslenskar bækur, Fræði- og handbækur
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2016
- Útgefandi: Sæmundur-bókaútgáfa
- Blaðsíðufjöldi: 468
