Garðurinn
| Price: | 4.899 ISK |
Vörunúmer: JPV330295
Hvar er varan fáanleg
Penninn Eymundsson
- Akureyri
- Húsavík
- Ísafjörður
- Mjódd
- Selfoss
- Smáralind
Product description
Eyju bregður þegar hún lítur út um gluggann á nýju íbúðinni og sér að hinum megin við götuna breiðir gríðarmikill kirkjugarður úr sér, fullur af legsteinum og krossum. Þvílíkir nágrannar! Þó verður ástandið fyrst svart þegar pabbi hennar kaupir brúna leðurstólinn í antíkbúðinni niðri í bæ. Foreldrum hennar finnst hann algert æði en Eyja finnur strax að stólnum fylgir eitthvað sem er óvelkomið inn á heimilið eitthvað vont. Í nýja skólanum kynnist Eyja skemmtilegum stelpum en allra bestur er Sölvi strákurinn sem er kannski vinur og kannski kærasti og kannski í 10. bekk.
