Log In

to shop

Karfa

  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
Valmynd
  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
  • FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA

Innskráning

Nýskráning - Fyrirtæki
Nýskráning -Einstaklingar Gleymt lykilorð?
  1. Allar íslenskar bækur
  2. Gátan

Gátan

Sækja mynd
Image description
Price:3.999 ISK
Vörunúmer: SOR9789935311504
Hvar er varan fáanleg

Penninn Eymundsson

  • Austurstræti 18
  • Kringlan Suður
  • Hafnarfjörður
  • Keflavík

Höfundur

Camilla Läckberg/Henrik Fexeus

Product description

Gátan er hörkuspennandi saga eftir glæpasagnadrottninguna Camillu Läckberg og sjáandann Henrik Fexeus. Hún er hluti af hinum geysivinsæla þríleik um tvíeykið sérstaka, leynilögreglukonuna Mínu og sjáandann Vincent.

Þegar lítill drengur hverfur frá leikskóla á Södermalm í Stokkhólmi kemur aftur til kasta Mínu Dabiri og félaga hennar í lögreglunni. Þau finna fljótt líkindi við annað barnsrán, sem endaði með skelfingu, og átta sig á því að þau eiga í höggi við harðsvíraða glæpamenn. Allt bendir til þess að fleiri börn muni hverfa.

Í fyrsta sinn eftir hina örlagaríku atburði tveimur árum fyrr hefur Mína samband við sjáandann Vincent Walder. Samband þeirra er jafnsérstakt og áður og í ljós kemur að hann hefur líka sitthvað til málanna að leggja við rannsókn þessa máls sem snýst um brotin fjölskyldubönd, miskunnarlaus morð og skugga fortíðar. En þetta er kapphlaup við tímann. Hver getur komið til bjargar þegar þau sem minnst mega sín eru í lífshættu?

Camilla Läckberg er einn vinsælasti rithöfundur Evrópu og hafa bækur hennar selst í rúmlega 29 milljónum eintaka í tæplega 60 löndum um allan heim. Henrik Fexeus er margverðlaunaður sjáandi og einn fremsti sérfræðingur heims á sviði líkamstjáningar. Bækur hans hafa selst í 1,5 milljónum eintaka í 35 löndum um allan heim.

Sigurður Þór Salvarsson íslenskaði.

Product category

    Íslenskar bækur, Skáldverk þýdd - kiljur
  • Form: Kilja
  • Útgáfuár: 2022
  • Blaðsíðufjöldi: 549
  • Staðsetningar og opnunartímar
  • Skilmálar
  • Hafa samband
  • Vildarklúbbur
  • Um Pennann Eymundsson
  • Verslanir
  • Dreifingarmiðstöð - Verkstæði
  • | Penninn ehf. - Kt. 560109-0670 - Smáratorg 3, 201 Kópavogur - Ísland, Vsknr. 100269 |

540 2000

Skiptiborð

Samband við allar verslanir