Log In

to shop

Karfa

  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
Valmynd
  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
  • FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA

Innskráning

Nýskráning - Fyrirtæki
Nýskráning -Einstaklingar Gleymt lykilorð?
  1. Gleðiskruddan

Gleðiskruddan

Sækja mynd
Image description
Price:6.399 ISK
Vörunúmer: GLED249821
Hvar er varan fáanleg

Penninn Eymundsson

  • Akranes
  • Austurstræti 18
  • Kringlan Suður
  • Akureyri
  • Ísafjörður
  • Skólavörðustígur
  • Selfoss
  • Smáralind

Höfundur

Marit Davíðsdóttir/Yrja Kristinsdóttir

Product description

Gleðiskruddan er dagbók fyrir börn og ungmenni á aldrinum 6-15 ára sem byggir á hugmyndafræði jákvæðrar sálfræði. Það er mikilvægt fyrir börn og ungmenni að hafa tækifæri til að efla sjálfsþekkingu sína sem hjálpar þeim um leið að takast á við verkefni og áskoranir daglegs lífs. Aðferðir innan jákvæðrar sálfræði geta stuðlað að persónulegum vexti og bjóða upp á möguleika fyrir einstaklinga að blómstra. Svokölluð jákvæð inngrip hafa reynst áhrifarík í því að viðhalda hamingju og öðrum jákvæðum tilfinningum ásamt því að minnka einkenni þunglyndis og kvíða.
Dagbókin telur 100 daga þar sem jákvæða inngripið þrír góðir hlutir er í forgrunni. Þar skráir barnið niður þrjá góða hluti sem áttu sér stað þann daginn. Dögunum er skipt upp í 21 þemu; tilfinningar, styrkleika, hamingju, bjargráð við streitu og kvíða, gróskuhugarfar, trú á eigin getu, sjálfstal, sjálfsvinsemd, markmið, seiglu, svefn, hreyfingu, útiveru, núvitund, öndun, að njóta, flæði, þakklæti, góðvild, bjartsýni og von. Hvert og eitt þessara þema er útskýrt á einfaldan hátt til að auðvelda skilning.
Á hverjum degi má einnig finna gleðimola eða gleðifræ dagsins sem tengist þemanu hverju sinni í formi hugleiðinga, tilvitnana, áskorana og æfinga.
Markmið Gleðskruddunnar er að efla sjálfsþekkingu, trú á eigin getu og þrautseigju, ásamt því að auka jákvæðar tilfinningar, bjartsýni og vellíðan.

Product category

    Barnabækur, Fræðibækur fyrir börn
  • Form: Innbundin
  • Útgáfuár: 2021
  • Blaðsíðufjöldi: 176
  • Staðsetningar og opnunartímar
  • Skilmálar
  • Hafa samband
  • Vildarklúbbur
  • Um Pennann Eymundsson
  • Verslanir
  • Dreifingarmiðstöð - Verkstæði
  • | Penninn ehf. - Kt. 560109-0670 - Smáratorg 3, 201 Kópavogur - Ísland, Vsknr. 100269 |

540 2000

Skiptiborð

Samband við allar verslanir