Gríma
| Price: | 3.999 ISK |
Höfundur
Product description
Þótt Gríma Pálsdóttir búi í þorpi þar sem allt snýst um fisk, er hún ekki gerð fyrir fiskvinnu og ætlar sér ekki að verða sjómannskona. Hún stefnir hærra og dreymir um annað og litríkara líf. Metnaður hennar og óhefðbundin framkoma, ekki síst gagnvart karlmönnum, kemur hins vegar miklu róti á hið venjubundna þorpslíf og brátt hriktir í öllum stoðum. Benný Sif Ísleifsdóttir er þjóðfræðingur frá Háskóla Íslands. Gríma er fyrsta skáldsaga hennar, og hlaut hún nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta vorið 2018. Gríma er söguleg skáldsaga sem segir frá örlögum kvenna í íslensku sjávarþorpi um og eftir miðja tuttugustu öld. Sagan er grípandi, persónusköpun sterk og bygging verksins vel úthugsuð. Textinn er lifandi og skemmtilegur en um leið lýsir höfundur harmrænum atburðum af einstakri næmni.Frásagnargleði og væntumþykja fyrir viðfangsefninu einkenna þessa hrífandi skáldsögu.
Umsögn við úthlutun Nýræktarstyrks Miðstöðvar íslenskra bókmennta 2018
Product category
-
Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - innbundin
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2018
- Útgefandi: Bjartur Veröld
