Helvítis fantur ertu! Gunnar Ingi Gunnarsson læknir leysir frá skjóðunni.
| Price: | 8.499 ISK |
Penninn Eymundsson
- Akranes
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Akureyri
- Hallarmúli 4
- Hafnarfjörður
- Húsavík
- Ísafjörður
- Mjódd
- Selfoss
- Smáralind
Product description
HELVÍTIS FANTUR ERTU! er ævisaga Gunnars Inga Gunnarssonar sem lungann úr starfsævi sinni var yfirlæknir á Heilsugæslunni Árbæ. Hann kom reyndar víðar við, svo sem á Slysavarðstofunni og Læknavaktinni, auk þess að grípa í afleysingar á fjölmörgum stöðum á landsbyggðinni. Þá lét hann jafnframt til sín taka á öðrum vígstöðvum og gekk það ekki alltaf þegjandi og hljóðalaust fyrir sig, eins og dæmin sanna.
Gunnar Ingi hefur næmt auga fyrir því skoplega í tilverunni og ber bókin þess glöggt merki. Fjölmargar skemmtilegar sögur af ótrúlegum uppákomum er hér að finna en einnig dapurlegar. Hann hefur séð dauðann í sinni óvenjulegustu mynd og stóð um tíma sjálfur, af eigin völdum, á bjargbrún tilverunnar. Stuttu síðar gerði ólánsmaður einn úr undirheimunum heiðarlega tilraun til þess að koma honum fyrir kattarnef og ekki bara einu sinni.
