Hinir útvöldu Sagan af því þegar Ísland varð sjálfstætt ríki árið 1918
| Price: | 5.299 ISK |
Penninn Eymundsson
- Kringlan Suður
- Hafnarfjörður
- Smáralind
Höfundur
Product description
Þetta var einstök upplifun. Fólki vöknaði um augu þegar það horfði á ríkisfána Íslands dreginn að hún á Stjórnarráðsbyggingunni í Reykjavík í fyrsta sinn klukkan tólf á hádegi sunnudaginn 1. desember 1918. Draumur þjóðarinnar um sjálfstæði hafði ræst.
Gunnar Þór Bjarnason sagnfræðingur rekur aðdragandann í lifandi myndskreyttri frásögn í bókinni Hinir útvöldu: Sagan af því þegar Ísland varð sjálfstætt ríki árið 1918. Sagt er frá eftirminnilegum einstaklingum, hörðum átökum og þjóðlífi í skugga heimsstyrjaldar og áfalla hið viðburðaríka ár 1918. Var þessi fámenna þjóð í stakk búin til að reka sjálfstætt ríki?
Gunnar Þór hefur á undanförnum árum vakið athygli fyrir vönduð og einkar læsileg sögurit. Hann hefur fengið ýmsar viðurkenningar fyrir verk sín og hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 2015 fyrir bókina Þegar siðmenningin fór fjandans til: Íslendingar og stríðið mikla 1914-1918.
Product category
-
Íslenskar bækur, Fræði- og handbækur
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2018
- Útgefandi: Sögufélag
- Blaðsíðufjöldi: 404
