Hjartastaður
| Price: | 3.999 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Smáralind
Höfundur
Product description
Harpa Eir flýr úr borginni til að bjarga dóttur sinni úr hæpnum félagsskap. Með mæðgunum í för er vinkona Hörpu sem ekur bílnum og stefnan er sett á ættaróðalið fyrir austan. En ferðin snýst brátt upp í fleira en að bjarga barninu, því óafvitandi er Harpa Eir á leið til fundar við sannleikann um sjálfa sig.
Hjartastaður er mögnuð ferðasaga þar sem leiðin liggur jafnt um stórbrotna náttúru við þjóðveginn og hrjóstrugt landslag hugans. Í bílnum og utan hans tekst þrenningin á við uppákomur af ýmsu tagi en yfir og allt um kring sveima áleitnar minningar og fortíðarpersónur, lífs og liðnar.
Hjarta-staður er ein þekktasta skáldsaga Steinunnar Sigurðardóttar og hefur verið ófáanleg lengi. Fyrir hana hlaut hún Íslensku bókmenntaverðlaunin 1995.
Guðni Elísson ritar eftirmála.
Product category
-
Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - kiljur
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2020
- Blaðsíðufjöldi: 444
