Hungurleikarnir
| Price: | 2.800 ISK |
Höfundur
Product description
Á hverju ári skipa yfirvöld í Kapítól umdæmunum tólf í Panem að senda einn strák og eina stelpu að keppa á Hungurleikunum. Keppnin er sýnd í beinni útsendingu og reglurnar eru einfaldar sá sigrar sem heldur lífi.
Hin sextán ára Katniss Everdeen vekur athygli um allt Panem þegar hún býðst til að taka þátt í Hungurleikunum í stað systur sinnar. Með henni úr Tólfta umdæmi fer bakarasonurinn Peeta. Líkurnar á að þau lifi af eru sáralitlar en Katniss hefur meiri sjálfsbjargarviðleitni en flestir aðrir og Peeta leikur leikinn alveg á nýjan máta.
Hungurleikarnir er fyrsta bókin í æsispennandi bókaflokki Suzanne Collins en bækurnar fóru sigurför um heiminn, sátu árum saman á metsölulistum og eftir þeim voru gerðar geysivinsælar kvikmyndir. Þær hafa verið þýddar á yfir fimmtíu tungumál og selst í meira en 100 milljónum eintaka.
Magnea J. Matthíasdóttir þýddi.
Product category
-
Barnabækur, Unglingabækur þýddar - kiljur
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2012
- Blaðsíðufjöldi: 375
- ISBN: 9789935112972
