Hvað ef?
| Price: | 4.699 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Hallarmúli 4
- Hafnarfjörður
- Ísafjörður
- Smáralind
Höfundur
Product description
Hvað ef Róm hefði ekki fallið, Hitler hefði unnið, Bítlarnir hefðu aldrei verið til, Lenín hefði lifað lengur, ekkert hrun orðið á Íslandi og fleiri sagnfræðilegar vangaveltur um það sem hefði getað orðið
Hvað ef víkingar hefðu sigrað heiminn, Jörundur hefði hengt einhvern, Hitler hefði unnið eða Bítlarnir hefðu ekki verið til?
Í þessari frumlegu bók er kafað í lykilatburði í mannkynssögunni og skoðað hvernig þeir hefðu hugsanlega getað farið öðruvísi og hvað hefði þá getað gerst í framhaldinu. Lesandinn er í fimmtán köflum leiddur í ferðalag sem teygir sig allt frá gullaldarárum Rómarveldis til Þýskalands í fyrri og seinni heimsstyrjöldunum, frá Íslandi á tímum víkinga, hundadagakonungs og útrásarvíkinga til fallvaltra Sovétríkjanna og frá Bítlunum til forsetakosninga nýliðinna ára í Bandaríkjunum.
Valur Gunnarsson hefur starfað sem blaðamaður í 20 ár og hefur fjallað um allt frá átökum á Austurvelli til vígvalla Úkraínu. Hann lærði sagnfræði við Háskóla Íslands, Háskólann í Helsinki, Humboldt háskóla í Berlín og Kúras stofnunina í Kænugarði jafnt sem ritlist í Belfast og Norwich. Hann hefur áður sent frá sér fjórar bækur, þar á meðal skáldsöguna Örninn og fálkann sem fjallar um hvað hefði gerst ef nasistar hefðu hernumið Ísland, svo og bókina Bjarmalönd sem greinir frá arfleifð Sovétríkjanna í Austur-Evrópu. Hann hefur starfað fyrir fjölmarga íslenska miðla, til dæmis Ríkisútvarpið, Fréttablaðið, Stundina og Reykjavik Grapevine sem hann ritstýrði, og erlenda miðla á borð við The Guardian, Associated Press og Berliner Zeitung.
Product category
-
Íslenskar bækur, Fræði- og handbækur
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2022
- Blaðsíðufjöldi: 240
