Icelandic Vikings
| Price: | 2.799 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Akureyri
- Skólavörðustígur
Höfundur
Product description
Víkingaöldin var í hámarki þegar Ísland var
numið um 870. Varla hefur landið verið spennandi
staður fyrir víkinga: óbyggðir úr alfaraleið
nyrst í hafi þar sem ekkert fémætt var að finna.
Þegar landsmenn hófu að skrá sögu sína í byrjun
12. aldar var ekkert minnst á víkinga. En undir
lok aldarinnar og á 13. öld er ekki þverfótað
fyrir víkingum af fjölskrúðugasta tagi í
sögubókum Íslendinga. Hvað breyttist? Hvaðan kom
vitneskjan um víkinga? Voru víkingar á Íslandi?
Tóku Íslendingar þátt í ránsferðum víkinga til
Bretlandseyja og meginlands Evrópu? Eða eru
íslensku víkingarnir fyrst og fremst
sköpunarverk hugmyndaríkra lærdómsmanna á 12. og
13. öld?
Í bókinni fjallar Guðmundur Magnússon
sagnfræðingur á aðgengilegan og skemmtilegan
hátt um þessi mál en bókin er ætluð erlendum
ferðamönnum á Íslandi
Product category
-
Íslenskar bækur, Landk-History & Reference
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2013
- Útgefandi: Bjartur Veröld

