Jakobína saga skálds og konu
| Price: | 7.269 ISK |
Höfundur
Product description
Jakobína Sigurðardóttir rithöfundur og skáld ólst upp í sárri fátækt á Hornströndum. Fjölskyldan var stór og samheldin, guðsorð og bókmenntir haldreipið í harðri lífsbaráttu. Ung mátti hún gefa menntadrauma sína upp á bátinn og oft varð lítið rúm til þess að sinna skáldagyðjunni í amstri og andstreymi hversdagsins. Sjálf var
hún alla tíð fáorð um lífshlaup sitt og lét farga bæði bréfum sínum og dagbókum.
Jakobína saga skálds og konu veitir dýrmæta innsýn í líf Jakobínu og varpar nýju ljósi á verk hennar. Það er dóttir skáldsins sem segir frá og fléttar listilega saman endurminningar, vandaða heimildavinnu og ögn af skáldskap því að Bína mætir sjálf í kaffi og hefur uppi ýmsar meiningar um þessa ævisögu sína.
Sigríður Kristín Þorgrímsdóttir sagnfræðingur er fædd í Garði í Mývatnssveit 1956. Hún hefur sinnt margvíslegum ritstörfum gegnum tíðina, en síðast kom út eftir
hana femíníska sjálfsævisagan Alla mína stelpuspilatíð.
Product category
-
Íslenskar bækur, Ævisögur - íslenskar
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2019
- Útgefandi: Forlagið
- Blaðsíðufjöldi: 420
