Járnmaðurinn - Innrás geimvofanna
| Price: | 4.199 ISK |
Vörunúmer: EDD9789935138613
Product description
Tony Stark hefur helgað líf sitt því að tryggja að tækninýjungar hans skaði ekki annað fólk. Þegar S.H.I.E.L.D.-fulltrúinn Coulson segir Tony að tveir meðlimir Avenger-hópsins hafi horfið við eftirlit með einni af uppfinningum hans umbreytir Tony sér samstundis í Járnmanninn og geysist af stað til að leita þeirra! Í ferðinni mætir hann stökkbreyttum hundum, vélhákörlum og ófrýnilegum umbreytanlegum skrímslum úr annarri vídd! Þegar Tony reynir að ráða við vandann upp á eigin spýtur gerir hann sér grein fyrir því að hann þarf á hjálp hinna úr Avenger-hópnum að halda. En ná þau til hans í tæka tíð? Eða stendur Tony einn frammi fyrir nýrri ógn: GEIMVOFUNUM?
