Lífið í Svíþjóð 1951 - 1986. Nokkurs konar heimildarrit
| Price: | 5.559 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Keflavík
- Skólavörðustígur
- Mjódd
- Selfoss
- Smáralind
Product description
Í sjálfsævisögu Guðbjargar Þórðardóttur segir frá heimsókn ungrar íslenskrar konu til Stokkhólms vorið 1947. Hrifning hennar af borginni varð slík að hún ákvað að setjast þar að til frambúðar.
Í bókinni gefur hún sjálfri sér nafnið Marta. Hún lýsir sér sem konu sem gerir litlar efnislegar kröfur, lifir nægjusömu lífi en í risastórum hugarheimi um allt sem gefur lífinu gildi. Sagan er sögð á hispurslausan og líflegan hátt. Þar kemur við sögu litríkur sambýlismaður hennar ásamt fjölbreyttum skara samferðafólks.
Þetta er ástar- og örlagasaga hrifnæmrar konu sem ólst upp á afskekktum bæ í Vopnafirði en festi kyrfilega rætur í sænsku stórborginni á gífurlegum umbreytingatímum eftirstríðsáranna í sænsku þjóðlífi.
Sögu sína skrifaði Guðbjörg á sænsku en hér birtist hún í íslenskri þýðingu.
Sannkallaður yndislestur!
Þýðandi: Emil B. Karlsson
