Lokasuðan
| Price: | 4.299 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Akureyri
- Húsavík
- Keflavík
- Smáralind
Höfundur
Product description
Í Lokasuðunni heldur Torgney Lindgren áfram sagnagerð sinni um heim bernskuslóðanna í Vesturbotni í Norður-Svíþjóð. Nú með aðstoð sögumanns sem hefur lifað ellina af og er kominn á aðra öld!
Á sama tíma og berklar herja á mannfólkið taka tveir menn, þýskur flóttamaður og ungur aðkomumaður að sunnan,sér fyrir hendur að finna bestu aðferðinni við að sjóða kæfu en í Vesturbotni tók kæfusuðan á sig ýmsar myndir.
Lesandanum er eftirlátið að meta sannleiksgili sögunnar. Er allt satt eða ekkert eða kannski sumt?
Heimir Pálsson íslenskaði.
Torgny Lindgren var einn mesti stílsnillingur sænskra nútímabókmennta, ljóðskáld, skáldsagnahöfundur og leikskáld. Hann hlaut margvíslegar viðurkenningar fyrir verk sín og var kjörinn í Sænsku akademíuna árið 1991. Bækur hans hafa verið þýddar á yfir 30 tungumál.
Lokasuðan er fimmta bók Lindgrens sem kemur út á íslensku en hinar eru Naðran á klöppinni, Fimm fingra mandlan, Randafluguhunang og Norrlands Akvavit.
Product category
-
Íslenskar bækur, Skáldverk þýdd - kiljur
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2023
- Blaðsíðufjöldi: 269
