Málsvörn stærðfræðings
| Price: | 3.799 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Skólavörðustígur
- Selfoss
Product description
G. H. Hardy (1877-1947) var heimskunnur breskur stærðfræðingur í Cambridge á fyrri hluta 20. aldar. Hann er þekktur fyrir framlag sitt til talnafræði og stærðfræðilegrar greiningar, en utan fræðaheimsins hefur tvennt einkum haldið nafni hans á lofti. Annað er að hann uppgötvaði árið 1914 indverska stærðfræðisnillinginn Ramanujan, hjálpaði honum að komast til Englands og starfaði með honum allt til dauða Ramanujans 1920. Hitt er þessi litla bók.
Bókin er eins konar fagurfræði stærðfræðinnar, rituð seint á ævi Hardys þegar hann fann að sköpunarmáttur sinn og starfsgeta voru farin að þverra. Hún er skrifuð af hvötinni til að réttlæta val sitt á ævistarfi í augum sjálfs sín og fyrir öðrum mönnum og til að sýna fram á hvers vegna hann taldi hreina stærðfræði þess virði að rannsaka, óháð hagnýtri notkun hennar.
