Merking
| Price: | 4.299 ISK |
Penninn Eymundsson
- Hafnarfjörður
Höfundur
Product description
Skáldsagan Merking er margradda verk sem fjallar um afstöðu og pólaríseringu, fordóma og samkennd.
Samkenndarprófið er byltingarkennd tækni og rannsóknir staðfesta marktæka fylgni milli andsamfélagslegrar hegðunar og að mælast undir lágmarksviðmiðum þess. Einstaklingum býðst að taka prófið og merkja sig í kjölfarið í opinberan kladda Sálfræðingafélags Íslands til að sýna samfélaginu fram á að þeim sé treystandi. Ráðafólk hefur þurft að merkja sig, hvert fyrirtækið á fætur öðru kýs að gera það og ný hverfi rísa þar sem ómerktum er meinaður aðgangur.
Íslenska þjóðin er klofin; annar helmingurinn vill öruggara samfélag, hinn vill réttlátt samfélag. Aðalpersónur sögunnar, Vetur, Eyja, Óli og Tristan, hafa öll þurft að laga sig að nýjum siðferðisgrundvelli samfélagsins og fram undan er þjóðaratkvæðagreiðsla sem sker úr um hvort merkingarskylda verði bundin í lög.
Product category
-
Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - innbundin
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2021
- Blaðsíðufjöldi: 266
