Náðargjafir andlegrar greiningar
| Price: | 2.899 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
Höfundur
Product description
Lífsmótun bætir nú úr bráðum skorti á vönduðu og fróðlegu efni á íslensku um trúarþörf, -mótun og -iðkun með útgáfu á mastersritgerð sr. Vigfúsar Ingvars Ingvarssonar um náðargjafir andlegrar greiningar. Í ritgerð sinni rannsakar sr. Vigfús trúarlega kjölfestu í ljósi hlutverkakenningar Hjalmar Sundén. Þá skoðar hann og andlegar æfingar Ignatíusar Loyola í ljósi hlutverkenningarinnar og nýrri hugmynda. Loks rýnir sr. Vigfús í trúarlíf nokkra þjóðþekktra Íslendinga sem dæmi um trúarlega mótun og stuðning við hana um leið og hann tekst á við spurninguna um framtíð andlegrar fylgdar hér á landi. Á tímum þar sem öfgahópar ýmis konar sækja fram hlýtur að vera vert að spyrja sig hvort hægt sé að styðja við trúarmótun og draga úr hættu á því að trú verði jarðvegur misréttis eða jafnvel misnotkunar. Bók sr. Vigfúsar beinir sjónum að varðaðri leið hógværðar og auðmýktar sem með sanni má segja að sé mannbætandi.
Product category
-
Íslenskar bækur, Trúarrit og bænir
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2019
- Blaðsíðufjöldi: 200
