Norrlands Akvavit
| Price: | 4.459 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Keflavík
Höfundur
Product description
Á fimmta áratug tuttugustu aldar varð mikil trúarvakning í Vesturbotni í Svíþjóð. Þar lék trúboðspresturinn Olof Helmersson stórt hlutverk. Hann var þekktur fyrir kraftmiklar predikanir, auk þess sem hann var ákafur baráttumaður fyrir bættri tannhirðu. Þegar vakningaraldan tók að dvína hvarf presturinn á braut og enginn vissi hvað um hann varð. Hálfri öld síðar snýr hann aftur. En þá var allt breytt í innsveitum Vesturbotns nema brennivínið, Gammal Norrlands Akvavit.
Torgny Lindgren (19382017) var einn mesti stílsnillingur sænskra nútímabókmennta. Hann var ljóðskáld, skáldsagnahöfundur og leikskáld. Lindgren hlaut margvíslegar viðurkenningar fyrir verk sín og var kjörinn í Sænsku akademíuna árið 1991. Bækur hans hafa verið þýddar á yfir 30 tungumál. Þetta er fjórða bók Lindgrens sem kemur út á íslensku en hinar eru Naðran á klöppinni, Fimm fingra mandlan og Randafluguhunang.
Heimir Pálsson þýddi bókina.
Product category
-
Íslenskar bækur, Skáldverk þýdd - kiljur
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2022
- Blaðsíðufjöldi: 260
