Log In

to shop

Karfa

  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
Valmynd
  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
  • FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA

Innskráning

Nýskráning - Fyrirtæki
Nýskráning -Einstaklingar Gleymt lykilorð?
  1. Allar íslenskar bækur
  2. Pater Jón Sveinsson – NONNI

Pater Jón Sveinsson – NONNI

Sækja mynd
Image description
Price:8.999 ISK
Vörunúmer: UGL424
Hvar er varan fáanleg

Penninn Eymundsson

  • Smáralind

Höfundur

Gunnar F. Guðmundsson

Product description

„Jón Sveinsson lifði og hrærðist i bókum sínum, Nonnabókunum. En honum fannst hann jafnframt þurfa að fylgja sögum sínum eftir með því að ferðast um heiminn, hitta fólk og komast í lifandi samband við það. Þannig fékk einnig eirðarleysi hans „postullegan“ tilgang. Hann var heimsmaður án föðurlands, talaði mörg tungumál en sjaldnast sitt eigið móðurmál, rótslitinn einstæðingur með kjölfestu í voninni, alla sína ævi á leiðinni heim.“
Þannig kemst Gunnar F. Guðmundsson sagnfræðingur að orði undir lok bókar sinnar um Jón Sveinsson sem árið 1870 yfirgaf föðurland sitt og sneri einungis til baka sem gestur.
Jón gekk inn í samfélag sem var eins fjarri íslenskum veruleika og hugsast gat. Hann gerðist kaþólskur prestur og kennari meðal Jesúíta. Hann var sendur víða til starfa – en þó aldrei til Íslands. Iðulega átti hann í innri togstreitu sem birtist vel í dagbókarskrifum hans og bréfum. Köllun hans til ritstarfa varð að miklu höfundarverki og bækurnar um Nonna víðfrægar, þýddar á um 30 tungumál og komu út í stórum upplögum. Jón lést í Þýskalandi árið 1944 þar sem sprengjurnar drundu allt um kring.
Auðmjúkur prestur, rithöfundur, kennari, fyrirlesari, tónlistarmaður, heimsborgari, Pater Jón Sveinsson lifði alla ævi í heimi bernskunnar þrátt fyrir að vera einn víðförlasti og þekktasti Íslendingur síns tíma.
Pater Jón Sveinsson – Nonni kemur nú út í nýrri útgáfu en bókin hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin þegar hún kom fyrst út árið 2012.

Product category

    Íslenskar bækur, Ævisögur - íslenskar
  • Form: Innbundin
  • Útgáfuár: 2022
  • Blaðsíðufjöldi: 635
  • Staðsetningar og opnunartímar
  • Skilmálar
  • Hafa samband
  • Vildarklúbbur
  • Um Pennann Eymundsson
  • Verslanir
  • Dreifingarmiðstöð - Verkstæði
  • | Penninn ehf. - Kt. 560109-0670 - Smáratorg 3, 201 Kópavogur - Ísland, Vsknr. 100269 |

540 2000

Skiptiborð

Samband við allar verslanir