Log In

to shop

Karfa

  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
Valmynd
  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
  • FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA

Innskráning

Nýskráning - Fyrirtæki
Nýskráning -Einstaklingar Gleymt lykilorð?
  1. Allar íslenskar bækur
  2. Ræktaðu garðinn þinn

Ræktaðu garðinn þinn

Sækja mynd
Image description
Price:10.999 ISK
Vörunúmer: SOR9789935313485
Hvar er varan fáanleg

Penninn Eymundsson

  • Akranes
  • Austurstræti 18
  • Kringlan Suður
  • Akureyri
  • Hallarmúli 4
  • Hafnarfjörður
  • Húsavík
  • Ísafjörður
  • Keflavík
  • Skólavörðustígur
  • Mjódd
  • Vestmannaeyjar
  • Selfoss
  • Smáralind

Höfundur

Vilmundur Hansen

Product description

Litrík blóm og angandi kryddjurtir
Það er einstök tilfinning að gróðursetja plöntur og lauka eða sá fræjum og fylgjast með lífinu taka við sér. Garðyrkja er ekki aðeins leið til að fegra umhverfið eða rækta sér til matar – hún skapar einnig kyrrð, tengingu og gleði í amstri dagsins.

Í Ræktaðu garðinn þinn leiðir Vilmundur Hansen lesendur inn í heim sumarblóma, kryddjurta og lauka og sýnir hvernig þessar plöntur þrífast best í heimagörðum. Hann fjallar um val á plöntum, gróðursetningu og umhirðu og útskýrir hvaða aðstæður henta best í íslenskri veðráttu. Hér mætast fegurð og nytjar – vinsælar tegundir jafnt sem áhugaverðar plöntur sem vert er að gefa gaum.

Bókin er jafnt ætluð þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref og þeim sem hafa lengi haft fingurna í moldinni. Með skýrum og aðgengilegum leiðbeiningum sýnir Vilmundur að ræktun þarf hvorki að vera flókin né fullkomin – hún byrjar einfaldlega á því að gefa sér tíma, vinna með árstíðunum og leyfa garðinum að fylgja sínum takti.

Vilmundur Hansen er garðyrkju- og grasafræðingur sem hefur um árabil miðlað þekkingu sinni í bókum og fjölmiðlum. Von hans er að bókin veiti lesendum innblástur og sjálfstraust – og auki ánægju¬stundir í garðinum.

Product category

    Íslenskar bækur, Gróður úti og inni
  • Form: Innbundin
  • Útgáfuár: 2026
  • Staðsetningar og opnunartímar
  • Skilmálar
  • Hafa samband
  • Vildarklúbbur
  • Um Pennann Eymundsson
  • Verslanir
  • Dreifingarmiðstöð - Verkstæði
  • | Penninn ehf. - Kt. 560109-0670 - Smáratorg 3, 201 Kópavogur - Ísland, Vsknr. 100269 |

540 2000

Skiptiborð

Samband við allar verslanir