Sagan af Klaustrinu á Skriðu
| Price: | 5.299 ISK |
Höfundur
Product description
Út er komin bókin Sagan af klaustrinu á Skriðu
eftir dr. Steinunni Kristjánsdóttur
fornleifafræðing. Steinunn stýrði uppgrefti á
Skriðu, einni viðamestu fornleifarannsókn sem
ráðist hefur verið í um árabil á Íslandi. Á
daginn kom að Skriða var ekki aðeins aðsetur
munka með helgihaldi og heitum bænum, heldur
einnig skjól hinna sjúku og dauðvona. Í bókinni
er saga staðarins rakin, sagt frá leitinni að
klaustrinu og óvæntum niðurstöðum uppgraftarins
sem er nýlokið. Í verkinu eru yfir 150
ljósmyndir, kort og teikningar. Steinunn
Kristjánsdóttir segir frá klaustrinu og
uppgreftinum á fjörugan og skemmtilegan hátt, án
þess að slegið sé af fræðilegum kröfum. Fyrir
lesendum opnast heimur trúar og valds, lífs og
dauða. Steinunn Kristjánsdóttir fæddist í
Barðastrandarsýslu árið 1965. Hún nam
fornleifafræði við Gautaborgarháskóla, lauk
þaðan doktorsprófi árið 2004. Steinunn er dósent
í fornleifafræði við Háskóla Íslands og
Þjóðminjasafn Íslands.
Product category
-
Íslenskar bækur, Sagnfræði
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2012
- Blaðsíðufjöldi: 375

