Samskipti
| Price: | 5.199 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Selfoss
- Smáralind
Höfundur
Product description
Góð samskipti eru lykillinn að velgengni og þau opna fjölmargar dyr. Þau eru það mikilvægasta sem við getum tileinkað okkur og hafa áhrif á alla þætti lífs okkar. Með færni í samskiptum gerum við lífið einfaldara og skemmtilegra, fækkum árekstrum og auðveldum okkur að kynnast fólki og ná markmiðum okkar.
Samskipti er leiðarvísir að jákvæðum samskiptum á mörgum sviðum, hvort sem er í einkalífinu, á vinnustað eða í félagslífinu. Farið er ítarlega yfir alls kyns samskipti milli einstaklinga, samskipti í hópum, hagnýtar aðferðir í samskiptum við börn, samskipti við ókunnuga og samskipti á netinu. Í bókinni má finna ótal góð ráð, æfingar, hugleiðingar og dæmisögur til að auka færni okkar á sviði samskipta. Samskipti á erindi við alla því með góðum aðferðum í samskiptum getum við gert okkar eigið líf betra á sama tíma og við bætum líf fólksins í kringum okkur.
Í bókinni koma einnig fram niðurstöður úr einni stærstu rannsókn sem gerð hefur verið á samskiptum Íslendinga. Rannsóknin var framkvæmd sérstaklega fyrir bókina og tóku yfir 1300 manns þátt í henni.
Pálmar Ragnarsson er einn vinsælasti fyrirlesari landsins og hann hefur haldið mörg hundruð fyrirlestra um jákvæð samskipti um allt land á undanförnum árum. Hann er með BS gráðu í sálfræði og MS gráðu í viðskiptafræði með áherslu á samskipti á vinnustöðum. Pálmar hefur þjálfað börn og unglinga í körfuknattleik í þrettán ár og vakið mikla athygli fyrir skemmtilegar og árangursríkar aðferðir sínar í samskiptum við börn og unglinga.
Product category
-
Íslenskar bækur, Fræði- og handbækur
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2020
- Útgefandi: Útgáfuhúsið Verðandi
- Blaðsíðufjöldi: 200
