Log In

to shop

Karfa

  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
Valmynd
  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
  • FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA

Innskráning

Nýskráning - Fyrirtæki
Nýskráning -Einstaklingar Gleymt lykilorð?
  1. Allar íslenskar bækur
  2. Sigga Vigga og tilveran

Sigga Vigga og tilveran

Sækja mynd
Image description
Price:11.999 ISK
Vörunúmer: PSSA971968
Hvar er varan fáanleg

Penninn Eymundsson

  • Austurstræti 18
  • Keflavík

Höfundur

Gísli J. Ástþórsson

Product description

Margir þekkja teiknimyndasögurnar um Siggu Viggu, fyrstu íslensku myndasöguhetjuna. Siggu Viggu má rekja til teikningar sem birtist í Alþýðublaðinu árið 1959, í miðju þorskastríði, af stelpu í stígvélum að hrekkja breskan aðmírál. Myndin vakti athygli út fyrir landsteinana og birtist á síðum erlendra dagblaða. Stelpan var að vísu gjörólík þeirri Siggu Viggu sem síðar varð, en ekki leið á löngu þar til hún var komin með nokkurn veginn það útlit sem við þekkjum í dag, með skýluklút, í vinnugalla og bússum.
Í heildarsafninu Sigga Vigga og tilveran eru fimm myndasögubækur sem komu út á árunum 1978–80 með úrvali myndasagna um Siggu Viggu, bestu vinkonu hennar Blíðu og forstjórann Gvend. Sögurnar tilheyra fyrstu kynslóð íslenskra myndasagna og draga upp beitta og broslega mynd af íslenskum veruleika, útgerð og fiskvinnslu.
Bókunum fylgir formáli eftir Úlfhildi Dagsdóttur, bókmenntafræðing. Gefið út í takmörkuðu, tölusettu upplagi.
Gísli J. Ástþórsson (1923–2012) blaðamaður, ritstjóri, rithöfundur og teiknari fæddist í Reykjavík og ólst upp þar og í Vestmannaeyjum. Hann nam blaðamennsku í Bandaríkjunum og sló nýjan tón með óháðri blaðamennsku og nýjungum í uppsetningu efnis. Eftir Gísla liggja skáldsögur, smásögur, leikrit og fjöldi ádeiluteikninga.

Product category

    Íslenskar bækur, Skáldverk þýdd - kiljur
  • Form: Kilja
  • Útgáfuár: 2023
  • Staðsetningar og opnunartímar
  • Skilmálar
  • Hafa samband
  • Vildarklúbbur
  • Um Pennann Eymundsson
  • Verslanir
  • Dreifingarmiðstöð - Verkstæði
  • | Penninn ehf. - Kt. 560109-0670 - Smáratorg 3, 201 Kópavogur - Ísland, Vsknr. 100269 |

540 2000

Skiptiborð

Samband við allar verslanir