Log In

to shop

Karfa

  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Púsl & Spil
  • HAY
  • Opnunartímar
FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
Valmynd
  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Púsl & Spil
  • HAY
  • Opnunartímar
  • FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA

Innskráning

Nýskráning - Fyrirtæki
Nýskráning -Einstaklingar Gleymt lykilorð?
  1. Allar íslenskar bækur
  2. Sjálfbærni í textíl - Neysla, nýting og nýsköpun

Sjálfbærni í textíl - Neysla, nýting og nýsköpun

Sækja mynd
Image description
Price:7.999 ISK
Vörunúmer: AJO959409
Hvar er varan fáanleg

Penninn Eymundsson

  • Austurstræti 18
  • Akureyri
  • Hafnarfjörður
  • Smáralind

Höfundur

Ásdís Jóelsdóttir

Product description

Markmiðin með bókinni byggja á þremur meginþáttum:
• að ná utan um hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar og virkja umhverfisvæna hugsun í verki og tengja sjálfbærni í textíl við sjálfbæran lífsstíl,
• að auka skilning almennings á sjálfbærri þróun og ábyrgri neyslu og finna leiðir til að lengja endingartíma fatnaðar og annarra textílafurða með því að endurhugsa og endurnota og jafnvel skapa eitthvað alveg nýtt,
• að hafa bókina innihaldsríka, einfalda að gerð og heimaunna en sú nálgun kallast einnig á við innihald bókarinnar; heimaunnin verkefni með áherslu á einfaldar aðferðir þar sem hvatt er til sjálfbærrar hugsunar, sköpunar, nývirkni og nýsköpunar með endurnýtingu að leiðarljósi.
Á undanförnum árum, sérstaklega eftir að Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun voru innleidd, er enn meiri þörf á þátttöku almennings í aðgerðum gegn umhverfismengun. Markmiðið með bókinni er að ná utan um þá þætti sem textílgreinin hefur upp á að bjóða í slíkum aðgerðum. Í tengingunni - neysla, nýting og nýsköpun - er áhersla lögð á að greina vandann og öðlast reynslu og þekkingu til að takast á við nývirkni og nýsköpun í leitinni að lausnum gegn sóun og mengun frá textílheiminum. Textílgreinin er fjölbreytt vegna þeirra ólíku aðferða sem heyra þar undir og hver aðferð fyrir sig býður upp á óendanlega fjölbreytni og verkefnaval. Í bókinni kallast ólíkar textílaðferðir á við mismunandi verkefni sem nálgast má með einföldum aðgerðum sem allir geta tileinkað sér og unnið að heima við á bæði persónulegan og skapandi hátt. Textílaðferðirnar eru útskýrðar með einföldum og skýrum teikningum sem studdar eru með stuttum skýringartextum og ítarlegum textaleiðbeiningum.
Verkefnið er styrkt af umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, Kennslumálasjóði Háskóla Íslands, Hagþenki - félagi höfunda fræðirita og kennslugagna og Miðstöð íslenskra bókmennta. Einnig hefur formaður Neytendasamtakanna og stjórn Félags textílkennara í grunnskólum veitt verkinu umsögn.

Product category

    Íslenskar bækur, Fræði- og handbækur
  • Útgáfuár: 2021
  • Staðsetningar og opnunartímar
  • Skilmálar
  • Hafa samband
  • Vildarklúbbur
  • Um Pennann Eymundsson
  • Verslanir
  • Dreifingarmiðstöð - Verkstæði
  • | Penninn ehf. - Kt. 560109-0670 - Skeifan 10, 108 Reykjavík - Ísland, Vsknr. 100269 |

540 2000

Skiptiborð

Samband við allar verslanir