Skaði
| Price: | 3.799 ISK |
Höfundur
Product description
Diljá öskraði og barðist um. Hjartað hamaðist í brjósti hennar og hún náði ekki andanum. Hún opnaði augun og og horfði óttaslegin í kringum sig. Sá ekkert en heyrði kyrrðina. Hægt og bítandi seig raunveruleikinn inn í vitund hennar.
Rannsóknarlögreglumaðurinn Guðgeir og teymi hans er kallað að tjaldsvæðinu í Herjólfsdal eftir að ljóst er að þar hafa átt sér stað voveiflegir atburðir. Skemmtiferð vinahjóna virðist hafa farið á annan veg en til stóð og ljóst er að margt býr undir yfirborði og ásjónu fólks. Rannsókn lögreglunnar teygir anga sína víða, allt frá eldfjallaeyjunni til frumskóga Mið-Ameríku.
Skaði er hörkuspennandi saga sem talar beint inn í samtímann. Sólveig hlaut Blóðdropann, verðlaun fyrir bestu íslensku glæpasöguna, fyrir bók sína Fjötra.
Það sem við höfum heyrt er satt. Sólveig Pálsdóttir er með þetta!
Product category
-
Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - innbundin
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2021
- Blaðsíðufjöldi: 278
