Sóley Eiríksdóttir Gletta
| Price: | 6.599 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Akureyri
- Hafnarfjörður
- Skólavörðustígur
- Smáralind
Product description
Bókin kom út í tilefni sýningar á verkum listakonunnar Sóleyjar Eiríksdóttur (1957-1994) sem haldin var í Hafnarborg í ársbyrjun 2023. Í bókinni er fjallað um ævi og feril Sóleyjar, þar sem fléttast saman bæði persónulegar hugleiðingar og listfræðileg innsýn. Höfundar greina eru Auður Ava Ólafsdóttir, rithöfundur og listfræðingur, og Aðalheiður Valgeirsdóttir, myndlistarmaður og listfræðingur. Auk þess deila vinir og samferðafólk listakonunnar minningum sínum af Sóleyju og draga þannig upp mynd af henni í lífi og leik. Þá er bókin einnig prýdd ljósmyndum af úrvali af verkum Sóleyjar, jafnt grafíkverkum sem þrívíðum verkum, sem hún vann í leir, steinsteypu eða brons. Allur texti bókarinnar er á íslensku og ensku. Ritstjórar eru Aldís Arnardóttir og Hólmar Hólm og Ármann Agnarsson sá um hönnun og umbrot.
Sóley Eiríksdóttir (1957-1994) útskrifaðist frá leirlistardeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1981. Sóley sýndi verk sín víða, bæði hér á landi og erlendis, á stuttum en kröftugum ferli. Leirinn var gegnumgangandi efni í verkum hennar og vann hún fyrst um sinn hefðbundna leirmuni sem telja má til nytjalistar. Síðar á ferlinum öðlast teikningar og myndefni hennar svo sjálfstætt líf í stórum þrívíðum verkum, sem unnin voru úr steinsteypu.
Product category
-
Íslenskar bækur, Listaverkabækur
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2023
- Blaðsíðufjöldi: 96
