Svarti engillinn
| Price: | 4.399 ISK |
Höfundur
Product description
Elo sat um stund og hikaði en snerti síðan líkið varlega. Það var ískalt. Hann dró hendina snöggt að sér; það var eitt að handleika ískaldan fisk á hverjum degi, annað að snerta dána manneskju.
Karlmaður finnst myrtur í báti á reki við Uummannaq á Norður-Grænlandi. Í farmi bátsins reynist vera mikið magn af hvítabjarnarfeldum og náhvals- og rostungstönnum. Við fyrstu sýn virðist hér um að ræða smyglvarning og afrakstur ólöglegra veiða. Í Kína seljast hvítabjarnarfeldir á háu verði og verð á tönnum rostunga og náhvala hefur rokið upp eftir að skorin var upp herör gegn veiðiþjófum í Afríku. Umhverfisverndarsamtök láta í sér heyra og Sika Haslund reynir að afstýra því að málið skaði orðspor Grænlands erlendis og þar með ferðaþjónustuna. Í kjölfarið fer Sika að rannsaka málið ásamt blaðamanninum Þormóði Gíslasyni. Þau komast fljótt að því að maðkur er í mysunni ...
Svarti engillinn er önnur bókin um Sika Haslund í sjálfstæðum flokki glæpasagna sem gerast á Grænlandi eftir danska rithöfundinn Ninu von Staffeldt. Fyrsta bókin í flokknum, Frosin sönnunargögn, hlaut verðlaun Det Danske Kriminalakademis sem besta frumraun ársins 2016.
Product category
-
Íslenskar bækur, Skáldverk þýdd - kiljur
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2022
- Blaðsíðufjöldi: 307
