Vald hinna veiku
| Price: | 9.899 ISK |
Penninn Eymundsson
- Akranes
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Akureyri
- Hallarmúli 4
- Hafnarfjörður
- Skólavörðustígur
- Mjódd
- Selfoss
- Smáralind
Höfundur
Product description
Landhelgisbarátta Íslendinga snerist um lífshagsmuni þjóðarinnar og saga þorskastríðins er þjóðarsaga. Í þessu riti er sagt frá útfærslu fiskveiðilögsögunnar í 50 sjómílur og mótmælum annarra ríkja. Frásögnin er æsileg og litríkir kappar eigast við. Á hafi úti beita liðsmenn Landhelgisgæslunnar togvíraklippum af miklum móð, breskir togarajaxlar bölva þeim í sand og ösku og freigátukapteinar reyna að verja þessa landa sína en fá ekki að beita öllu afli gegn litla Íslandi. Í landi mega sáttfúsir Íslendingar sín lítils gegn þeim sem vilja berjast fyrir rétti okkar með þeim rökum að samningar séu svik og málamiðlanir aumingjalegt undanhald. Í Lundúnum og víðar blöskrar mörgum svo að íslenskir valdhafar virði ekki alþjóðalög, séu þrjóskan uppmáluð og hafi í hvers kyns hótunum. Sjaldan hefur eins mikið gengið á í samtímasögu okkar og þessi átakaár.
