Vanished Summer
Product description
Bókin hefur að geyma ljósmyndir Katrínar
Elvarsdóttur af hjólhýsum að sumri og vetri,
óræðar náttúrumyndir og myndir teknar í
mannlausum húsum þar sem manngert umhverfi
skapar umgjörð utan um ímyndunarafl
áhorfandans.
Myndaröðin Vanished Summer er
innblásin af textum Gyrðis Elíassonar um einsemd
og einangrun sem dansa á línunni milli hins
röklega og hins fantasíska og kanna tengsl
mannsins við umhverfi sitt. Þannig kallast verk
Katrínar á við hugarheim Gyrðis og líkt og í
verkum hans er umfjöllunarefnið samspil manns og
náttúru.