Vefarinn mikli frá Kasmír
| Price: | 6.699 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Akureyri
- Ísafjörður
- Selfoss
- Smáralind
Höfundur
Product description
Vefarinn mikli frá Kasmír markar, ásamt Bréfi til Láru eftir Þórberg Þórðarson, upphaf íslenskra nútímabókmennta.
Hún kom út árið 1927 þegar Halldór Laxness var 25 ára að aldri og vakti gríðarlega athygli og deilur. Sumum þótti sagan of bersögul og óþjóðleg en aðrir fögnuðu henni sem tákni nýrrar tíðar og bjartrar.
Næstum jafnfrægur bókinni sjálfri er ritdómur Kristjáns Albertssonar: "Loksins, loksins tilkomumikið skáldverk sem rís eins og hamraborg upp úr flatneskju íslenskrar ljóða- og sagnagerðar síðustu ára! Ísland hefur eignast nýtt stórskáld - það er blátt áfram skylda vor að viðurkenna það með fögnuði."
En athyglin beindist þó ekki síður að höfundinum sjálfum. Hann var hneykslunarhella margra, þá eins og oft síðan, líferni hans þótti sérstakt; klausturvist, kaþólska, heimshornaflakk og bóhemlíf.
Product category
-
Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - innbundin
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2006
- Útgefandi: Vaka Helgafell / Forlagið
