Verity
| Price: | 4.499 ISK |
Penninn Eymundsson
- Akranes
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Akureyri
- Hallarmúli 4
- Hafnarfjörður
- Skólavörðustígur
- Selfoss
- Smáralind
Höfundur
Product description
Rithöfundurinn Lowen Ashleigh er í fjárhagskröggum þegar hún fær tilboð sem hún getur ekki hafnað. Jeremy Crawford, eiginmaður metsöluhöfundarins Verity Crawford, ræður Lowen til að klára síðustu bækurnar í afar vinsælum bókaflokki sem rúmföst eiginkona hans er ekki fær um að ljúka.
Lowen flyst á heimili Crawford-hjónanna á meðan hún býr sig undir að hefja verkið. Í óreiðunni á skrifstofu Verity finnur hún svolítið óvænt; ókláraða sjálfsævisögu sem Verity ætlaðist pottþétt ekki til að nokkur myndi lesa. Síða eftir síðu af játningum sem fá blóðið til að frjósa í æðunum, þar á meðal um hvað gerðist raunverulega daginn sem dóttir hennar dó.
Andrúmsloftið í húsinu verður sífellt drungalegra. Tilfinningar Lowen til Jeremy dýpka á sama tíma og uggvænlegur grunur um yfirvofandi hættu ágerist. Og á efri hæðinni liggur Verity í eigin heimi. Eða hvað?
Product category
-
Íslenskar bækur, Skáldverk þýdd - kiljur
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2023
- Blaðsíðufjöldi: 328
