Vesturland West Iceland
Price: | 2.599 ISK |
Penninn Eymundsson
- Akranes
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Akureyri
- Skólavörðustígur
- Selfoss
- Smáralind
Höfundur
Product description
Vesturlandið er bæði sérstakt og sérkennilegt. Þar eru Mýrar og Borgarfjörður áberandi með miklum fjölda sveitabæja og grænum og grösugum sveitum. Þéttbýlisstaðurinn Borgarnes er á krossgötum til suðurs, vesturs og norðurs. Snæfellsnes er vestasti hluti Vesturlands. Nesið er eins konar smækkuð útgáfa af Íslandi í jarðfræðilegu tillliti, og þar má finna mikinn fjölda náttúruminja á tiltölulega litlu landsvæði. Norðan Snæfellsness liggja Breiðafjarðareyjar, nærri þrjú þúsund talsins. Þarna bjó fólk, bændur og fiskimenn í tugum eyja fram um miðja síðustu öld. Í dag er Flatey eina byggða eyjan. Dalir eru fremur lítið landsvæði á fjöllóttum skaga á milli Borgarfjarðar og Snæfellsness annars vegar, og Vestfjarða hins vegar. Dalir eru einnig þekktir sem sögusvið margra Íslendingasagna. Akranes er stærsta bæjarfélagið á Vesturlandi og í landshlutanum öllum eru óteljandi forvitnileg náttúrufyrirbæri af öllum stærðum og gerðum.
Product category
-
Íslenskar bækur, Landk-Picture Books on Iceland
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2023